Frauðkassar

EPS kassarnir frá Borgarplasti eru ætlaðir til flutninga á fersku sjávarfangi, en henta einnig vel til notkunar í matvælaiðnaði almennt. Þeir eru gæddir ýmsum eiginleikum sem notendur kunna afar vel að meta. Kassarnir eru mjög léttir og einangra vel, sem sparar notkun á ís sem leiðir til lægri flutningskostnaðar. Þeir uppfylla ströngustu kröfur sem gerðar eru til umbúða í matvælaiðnaði og enn fremur eru þeir umhverfisvænir og endurvinnanlegir. Frauðplastkassarnir frá Borgarplasti falla að alþjóðlegum umbúða- og flutningakerfum og uppfylla kröfur um flutning á ferskum fiski með flugvélum.

Borgarplast býður uppá merkingar á kassa og einnig fylgihluti eins og ísmottur/gelmottur, bleiur, innri poka og ytri poka.

Allar kassategundir Borgarplast er hægt að fá fyrir flug (ógataðir) og gámaflutninga (gataðir).

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þær kassategundir sem Borgarplast býður uppá.

Lýsing

 

 

Lýsing Hæð með loki (mm) Breidd (mm) Lengd (mm) Hæð (mm) Breidd (mm) Lengd (mm) Rúmmál (lítrar)
3kg. Frauðkassi 106 263 397 64 218 352 4,6
5kg. Frauðkassi 130 263 397 88 218 352 6,4
7kg. Frauðkassi 145 263 397 103 218 352 7,4
5kg. Frauðkassi langur 140 250 470 94 205 425 8,0
7kg. Frauðkassi langur 170 250 470 124 205 425 10,6
11kg. Frauðkassi (60×40) 152 393 592 89 344 543 16,3
15kg. Frauðkassi langur / Flakakassi (60×40) 183 393 592 120 344 543 22
23kg. Frauðkassi 229 392 784 171 330 722 39,9
25kg. Frauðkassi 265 392 784 207 330 722 48,3

 

Senda fyrirspurn um vöru