350 PUR einangrað ker

350 PUR einangrað ker frá Borgarplast er fjölhæft ker með margþætt notkunarsvið og hentar vel þar sem pláss er takmarkað. 350 PUR einangraða kerið er mikið notað um borð í bátum undir ferskan, ísaðan fisk. Kerið er notað í fisk- og kjötvinnslum við vinnslu og geymslu hráefnis. Einangrað lok er fáanlegt á 350 kerið.

350 PUR einangrað ker frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólf- og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. Hægt er að stafla kerunum bæði með og án loka.

350 kerið frá Borgarplast er framleitt úr polyethylene og einangrað með polyurethane (PUR) frauði, sem hefur hátt einangrunargildi og gefur kerinu styrk.

Bjóðum einnig upp á lítillega útlitsgölluð ker á afslætti en þau ker eru ekki til notkunar í matvælaiðnaði.

 

Vörunúmer: 20157 Flokkar: , Merkimiði:

Lýsing

Stærðir og mál

Utan mál Innanmál
Hæð (mm) 730 575
Breidd (mm) 760 710
Lengd (mm) 920 860
Þyngd (kg) 28,5
Rúmmál (lítrar) 322

 

Senda fyrirspurn um vöru