400 PE einangrað ker

400 PE einangrað ker frá Borgarplast er fjölhæft ker með margþætt notkunarsvið og er Það sérstaklega vinsælt í fisk- og kjötvinnslum, fiskeldi og flutningastarfsemi. Grunnstærð kersins er 100 x 120 cm og fellur þar með undir svokallaða iðnaðarstærð samkvæmt alþjóðlega flutningastaðlinum ISO 6780. Einangrað lok er fáanlegt á 400 PE kerið.

400 PE einangrað kerið frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólf- og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. Kerið staflast með 600 og 700 kerunum bæði með og án loka.

400 PE einangraða kerið frá Borgarplast er bæði framleitt úr og einangrað með polyethylene (PE) og er því endurvinnanlegt. PE einangruð ker hafa minna einangrunargildi heldur en PUR einangruð ker, en þau eru burðarmeiri og sterkari.

Vörunúmer: 20658 Flokkar: ,

Lýsing

Stærðir og mál

Utan mál Innanmál
Hæð (mm) 570 410
Breidd (mm) 1000 9400
Lengd (mm) 1200 1140
Þyngd (kg) 51
Rúmmál (lítrar) 400

Senda fyrirspurn um vöru