600 PE einangrað ker

600 PE einangrað ker frá Borgarplast er fjölhæft ker með margþætt notkunarsvið og er Það sérstaklega vinsælt í fisk- og kjötvinnslum, fiskeldi og flutningastarfsemi. Grunnstærð kersins er 100 x 120 cm og fellur þar með undir svokallaða iðnaðarstærð samkvæmt alþjóðlega flutningastaðlinum ISO 6780. Einangrað lok er fáanlegt á 600 PE kerið.

600 PE einangrað kerið frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólf- og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. Kerið staflast með 400 og 700 kerunum bæði með og án loka.

600 PE einangraða kerið frá Borgarplast er bæði framleitt úr og einangrað með polyethylene (PE) og er því endurvinnanlegt. PE einangruð ker hafa minna einangrunargildi heldur en PUR einangruð ker, en þau eru burðarmeiri og sterkari.

Vörunúmer: 20676 Flokkar: ,

Lýsing

Stærðir og mál

Utan mál Innanmál
Hæð (mm) 750 5700
Breidd (mm) 1000 9400
Lengd (mm) 1200 1140
Þyngd (kg) 60
Rúmmál (lítrar) 600

 

Senda fyrirspurn um vöru