700 PUR einangrað ker

700 PUR einangrað ker frá Borgarplast er fjölhæft ker með margþætt notkunarsvið og er Það sérstaklega vinsælt í fisk- og kjötvinnslum, fiskeldi og flutningastarfsemi. Grunnstærð kersins er 100 x 120 cm og fellur þar með undir svokallaða iðnaðarstærð samkvæmt alþjóðlega flutningastaðlinum ISO 6780. Einangrað lok er fáanlegt á 700 kerið.

700 PUR einangrað kerið frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólf- og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. Kerið staflast með 400 og 600 kerunum bæði með og án loka.

700 kerið frá Borgarplast er framleitt úr polyethylene og einangrað með polyurethane frauði (PUR),. sem hefur hátt einangrunargildi og gefur kerinu styrk.

Bjóðum einnig upp á lítillega útlitsgölluð ker á afslætti en þau ker eru ekki til notkunar í matvælaiðnaði.

 

Vörunúmer: 20270 Flokkar: , Merkimiði:

Lýsing

Stærðir og mál

Utan mál Innanmál
Hæð (mm) 860 700
Breidd (mm) 1000 940
Lengd (mm) 1200 1140
Þyngd (kg) 55
Rúmmál (lítrar) 700

 

Senda fyrirspurn um vöru