Vegatálmar VT 330 Rauðir

kr. 35.935

Vegatálmar Borgarplast eru fáanlegir í rauðum og hvítum lit, þessir eru rauðir. Vegatálmarnir eru léttir, meðfærilegir og vega aðeins 24 kg. Hægt er að þyngja vegatálmana með því að setja í þá vatn. Blanda má salti í vatnið til þess að koma í veg fyrir að það frjósi. Vegatálmarnir eru með tappa neðst sem auðveldar tæmingu á þeim. Stafla má vegatálmunum saman þannig að þeir taki minna pláss í geymslu.

Vegatálmarnir eru m.a. heppilegir til að stýra akandi, gangandi og hjólandi umferð og afmarka vinnu- eða samkomusvæði. Hægt er að festa vegatálmana saman á endunum og má snúa þeim um 26° í læstri stöðu. Blikkljósum og ýmsum öðrum öryggis- og leiðbeiningarbúnaði er hægt að koma fyrir á vegatálmunum. Vegatálmar Borgarplasts eru ekki ætlaðir sem árekstrarvörn.

Flokkur:

Lýsing

 

Vörunr. Lýsing Lengd (mm) Breidd (mm) Hæð (mm) Þyngd (kg) Rúmmál (lítrar)
61200 Vegatálmi VT 330 Rauður 1490 510 810 24 330

 

Senda fyrirspurn um vöru