Sökkuleinangrun

Sökkuleinangrun er notuð innan og/eða utan á sökkul. EPS einangrun er einkar hentug sem sökkuleinangrun þar sem einangrunin þarf að standa af sér mikinn þrýsting og virka sem rakamótstaða. Við val á sökkuleinangrun þarf að taka tillit til jarðvegs, grunnvatns o.fl.

Algengustu rúmþyndir eru 16 og 24 kg/m3

Algengustu þykktir: Plötustærðir: Rúmþyngdir:
50 mm 50mm x 1000mm x 3000mm 16 og 24 kg/m3
75 mm 50mm x 1000mm x 3000mm 16 og 24 kg/m3
100 mm 50mm x 1000mm x 3000mm 16 og 24 kg/m3

Fyrir frekari upplýsingar eða ósk um tilboð hafið samband við sölumenn okkar á fyrirspurnarforminu hér að neðan eða í síma 561-2210.

Flokkur:

Tækniupplýsingar

EPS er stíft hitadeigt plastfrauð sem er myndað úr fjölda þaninna kúlna sem hafa verið bræddar saman. EPS hráefni er þanið út þar sem loft er lokað inni í örsmáum holrýmum.

EPS hefur all góðan styrk, mikla mýkt og einangrar mjög vel. EPS er 100% endurvinnanlegt.

Helstu eiginleikar EPS frauðs eru eftirfarandi:

Góður styrkur við lága eðlisþyngd
Gott einangrunargildi, en efnið þenur sig lítið við hitabreytingar og er stöðugt á bilinu -180°C – +80°C
Vatnssveim og vatnsgleypni er lítil.
Góð ending.
Gott viðnám gegn mörgum kemískum efnum og örverum.
Efnið er ekki of stíft og dempar því all vel hljóð sem myndast við högg.

Aðrar upplýsingar:

Frauðplast (EPS) heldur lögun sinni upp að 1% samþjöppun. Sé lóð fjarlægt áður en samþjöppun nær þessu marki, endurlagar plastið sig í upphaflegt form. Samþjöppun umfram 1% veldur því að það verður varanleg bjögun í plastinu. Þetta ættu menn að íhuga vandlega þegar valið er einangrunarplast undir gólfplötur og þá sérstaklega undir gólfum iðnaðarhúsa og frystiklefa.

Full þanið EPS frauð er um 98% loft, innilokað í holrými, og hefur þar af leiðandi mjög góða einangrunareiginleika. Það gerir EPS að mjög frambærilegu einangrunarefni í byggingariðnaði og til nota í umbúðir sem þurfa að verja innihaldið annað hvort fyrir hita eða kulda.

Þó svo að einangrun EPS frauðplasts sé best við eðlisþyngd milli 35-45 kg/m² þá er algengast að nota einangrun með eðlisþyngd um 15-20 kg/m³. Þetta er gert vegna þess að spara má peninga með því að nota léttara frauð með lægra einangrunargildi en nota þá þykkari plötur í staðinn og ná þannig sömu heildareinangrun.

Sveim (diffusion) vatnsgufu og vatnsísog ( water absorption) er lítið.
Frauðplast leysist ekki upp í vatni og bólgnar ekki út við það að fara í vatn. EPS sogar nær ekkert vatn upp í sig, vegna þess að holrýmin í plastinu eru lokuð.

EPS hefur verið notað sem einangrun í byggingariðnaði í meira en 40 ár. Menn hafa komist að því, með því að skoða eldri byggingar, að EPS heldur sínum eiginleikum yfir svo langt tímabil. Þetta þýðir að EPS frauðplast er áreiðanlegt og endingargott efni fyrir byggingariðnað og annars staðar sem það á við. Lífverur geta ekki melt EPS frauð. Þess vegna er það ekki gróðrarstía fyrir sveppi og bakteríur.

Senda fyrirspurn um vöru