1400 PUR einangrað ker

1400 PUR einangrað ker frá Borgarplast er það stærsta sem fyrirtækið framleiðir. Kerið er sérhannað fyrir geymslu á ferskum ísuðum túnfisk um borð í fiskiskipum. Kerið hefur einnig verið notað í saltfiskvinnslu, lageringu á rækju, fiskeldiog víðar. Einangrað lok er fáanlegt á kerið.

1400 PUR einangrað kerið frá Borgarplast er aðgengilegt fyrir gólflyftara frá 2 hliðum og gaffallyftara frá öllum 4 hliðum. Hægt er að hífa kerið á handföngunum og snúa því um 180 gráður með gaffallyftara eða kerahvolfara. Hægt er að stafla kerunum bæði með og án loka.

1400 kerið frá Borgarplast er framleitt úr polyethylene og einangrað með polyurethane frauði (PUR), sem hefur hátt einangrunargildi og gefur kerinu styrk.

Bjóðum einnig upp á lítillega útlitsgölluð ker á afslætti en þau ker eru ekki til notkunar í matvælaiðnaði.

 

Vörunúmer: 20176 Flokkar: , Merkimiði:

Lýsing

Stærðir og mál

Utan mál Innanmál
Hæð (mm) 880 675
Breidd (mm) 1170 1040
Lengd (mm) 1990 1860
Þyngd (kg) 120
Rúmmál (lítrar) 1250

 

Senda fyrirspurn um vöru